30desember

boom

Þá er Gamlársveikindi dottin í gírinn og ekkert verið bloggað eftir að ég kom með stóru yfirlísingarnar hérna um árið. en svona til að koma því aðeins til tals hvað mun vera á döfini á næsta ári þá ér það:

Norðurlandamót unglinga

Evrópumót unglinga

Heimsmeistaramót unglina

vúhú :)

Spennandi ár frammundan, og að sjálfsögðu eitthvað af mótum hérna heima líka :) þannig já ætla bara að láta mer batna svo ég komist á æfingu


seinna.
30. desember 2008 klukkan 19:30
Thelma Ólafsdóttir
1 athugasemd
25nóvember

Back in the game!

word bitches!... Nánar
25. nóvember 2008 klukkan 11:17
Thelma Ólafsdóttir
1 athugasemd
19apríl

Íslandsmeistari? haha!

Íslandsmeistari í 67.5kg flokki kvenna :)
tvíbætti íslandsmet unglinga í hnébeygju og bætti þarmeð íslandsmetið mitt frá því í mars í samanlögðum árangri og á MIKIÐ inni!
Afrekaði það að æla einsog múkki eftir bekkpressunna í miðri upphitun fyrir réttstöðuna :/ ekki alveg að gera góða hluti þar, en það spilaði bara aðeins inní fyrstu lyftuna mína í réttstöðunni og svo voru hinar tvær sem eftir fylgdu bara ágætar...sú síðasta hefði samt alveg mátt fara ALLA leið upp, en það kemur bara næst ;)
Einý sæta kom á mótið og tók vídjó fyrir mig :** og Jóhanna tækni mús ætlar að henda þeim inn á morgun eða hinn :*** þannig að þið getið bara beðið spennt eftir því.

Anyways... Me go sleep now, æfing í beisinu á morgun *geisp*

thelma sæta power
19. apríl 2008 klukkan 23:58
Thelma Ólafsdóttir
9 athugasemdir
18apríl

Bjartasta vonin

"Thelma Ólafsdóttir er skærasta von lyftingarmanna og margfaldur unglingameistari"

Þetta má lesa á blaðsíðu 38 í blaðinu 24 stundir sem borið er út frítt á lang flest heimili á landinu :) Flott mynd líka af stelpunni (eða hitt þó) sést vel uppí nefið á mér og þeir sem þekkja innihald þess vel sjá að þetta er augljóslega ég... það og bleiki jakinn er dead giveaway ;)

Íslandsmót KRAFT á morgun!!!! WISH ME LUCK!!!!!!!!!!!!!!



xox. thelma

18. apríl 2008 klukkan 13:46
Thelma Ólafsdóttir
1 athugasemd
14apríl

you will never get this....

þá er helgin búin og hile familian komin heim frá noregi, þ.e.a.s öll frændsystkinin :)
Helgin í Noregi var alveg OFUR og vel lukkuð í alla staði og held ég að flestir hafi skemmt sér bara mjög vel. Hef svosem ekkert margt meira um það að segja þannig að ég læt það bara kjurt liggja. Þó svo að maður gæti án efa sagt frá ýmsu :/



4 dagar í íslandsmót KRAFT sá í gær þegar ég kom heim frá Noregi að Boris hafði skráð mig á mótið og er það haldið kl
15:00 á Akranesi í íþróttahúsinu við Vesturgötu.




en já bara sama og venjulega blogga kanski ef einhvað gerist..... sjáum til, það er hvorteð er sorglegt að blogga....


xox.

14. apríl 2008 klukkan 20:41
Thelma Ólafsdóttir
2 athugasemdir
08apríl

Homma ćfing og Noregur

ÓLYMPÍSK æfing og homma fegrunar æfingar í dag þ.e.a.s clen og tog og jerk og svo bicep og kálfar og magi...alveg OFUR... Öxlin er einhvað að hrjá mig þessa dagana skil ekki alveg hvað er í gangi með hana.. ekki að fíla það. Var i ofur massa formi í gær og var með góðar bætingar í bekknum, ekki amalegt það. Svo er ég að fara núna á eftir að kaupa mér hitahlífar fyrir hnéin svo ég stúti þeim ekki í framtíðinni og svo það verði hægt að taka HRIKALEGA á því á beygju æfingu með strákunum á morgun. Stelpan er búin að þyngjast smá og er það bara pjúra gæðamassi sem er að koma sér vel fyrir á dömunni.
Svo er ég að fara til NORGE með mínum ástkæru frændsystkinum á fimmtudaginn og komum við aftur heim á sunnudag. Ætlunin er að taka vel á því í afmælinu hans Eiríks frænda sem verður 25 ára :) en meðan að frændsystkinin taka á því í drykkjuni býst ég við að taka á því á dansgólfinu með próteinsjeik í hendinni og taka þarmeð létt cardio bara og já kanski taka líka HRIKALEGA á því í H&M :P það er OFUR andi í því alveg :) stefni á að finna mikið af sætum hlírabolum til að vera í á æfingu, er komin með smá leið af íþrótta dótaríinu mínu ;)

kv.thelma sæta alveg hel mössuð og hrikaleg ;)

08. apríl 2008 klukkan 12:41
Thelma Ólafsdóttir
1 athugasemd
07apríl

Dúndur ćfing á Beisinu!

Fyrsta aflrauna æfingin var í dag. Hún gekk ágætlega, strákarnir reyndu að kenna mér einhvað sem ég held að heiti Jerk er samt ekki viss og það er ólympísklyfta og var það tussu erfitt, þó aðalega á heilan en ekki líkamann þarsem að þolinmæði er dygð sem að ég er ekkert alltof góð í. En það var rosa gaman að sjá Boris og Stebba taka á því og er aðstaðan sem að þeir hafa komið sér upp á gamla Beisinu bara þræl fín! Kellinginn fékk líka að æfa sig á loggnum og svona gekk það mis vel, næ honum léttilega upp en á í erfiðleikum með að sprengja hann upp svo að ég nái að pressa hann upp fyrir hausin á mér, en þetta kemur nú allt með æfingunni. Fékk líka að draga fiskikar sem er svona staðgengill fyrir trukkadrátt og var það brjálað stuð, ég er samt frekar léleg í þessu öllu og þá sérstaklega bændagöngunni þarsem að ég gat ekki blautan en þetta var nú fyrsta æfingin bara og djöfull verður tekið á því næst þá ríf ég sko upp þessi 100kg og hleyp einsig spídí gonzales með þau ;) Fórum svo á Thai í Keflavíl og borðaði ég svo hratt að ég gat borðað allan matin minn en hélt svo að ég myndi deyja á leiðini heim. Það var OFUR!

Svo þegar heim var komið fór ég í mína eigin afmælisveislu og veisluna hennar Kolku (héldum sameiginlega þarsem að við frænkurnar eigum sama afmælisdag) og var þar dýrindismatur og kræsingar :) allt að gefa vel! Fékk snilldar gjöf frá Ömmu og Afa í Grafarholtinu en hún samanstóð af uppskriftarbók og eldhúsáhöldum, spurning hvort að ég fari bara að henda upp eldhúsinréttingu í herberginu mínu og losi mig við skrifborðið? Annað hvort það eða ég verð að flytja að heiman sem ég er nú ekki að plana að gera í bráð. En núna eru amma og afi búin að gefa mér 6 bolla expresso bolla stell (ég drekk ekki kaffi) glasamottur "costers" og svo eldhúsháhöld og uppskriftabók..... spes hahah :) LOVE IT þá geta mamma og pabbi kanski ekki röflað þegar ég vaska ekki upp eftir mig í eldhúsinu þarsem að ég á þetta og ræð hvað ég geri við það ;)

Fékk fult af fínum gjöfum og bara mjög sátt við ammlis boðið  og daginn í heildina

Svo er það bara Brjóst og tricep á morgun það verður ofur og á eftir að gefa feitt! Þarf að fara að taka almennilega á því ;)

kv.thelma sæta power
07. apríl 2008 klukkan 00:12
Thelma Ólafsdóttir
Engin athugasemd
01apríl

OFUR!

Myndir frá mótinu eru komnar inná síðuna hennar Sunnu :) www.vodvafikn.net  takk fyrir að vera algjört æði Sunna og koma á mótið og jú öll önnur mót, hvar væri ég á daginn ef ekki væri fyrir þig? Allavegana veit ég að mér myndi skít leiðast því ég skoða síðuna þína svona 500 sinnum á dag... híhí (svo sad)
Einnig er ég búin að stelpa myndum frá Jóhönnu og jú Sunnu og er að henda nokkrum á myspeisið fyrir þá sem vilja skoða það :) Vidjo eru einnig komin á youtube undir "thelma sæta power" en þar eru allar 3 bekkpressu lyfturnar minar sem og opnunarþyngdin min i deddi. Því miður glataðist aðal vidjóið :( verð bara að hoppá á Boris aftur næst þegar ég fagna heheh en þá ætla ég nú að dedda mun meira en 110kg svo mikið er víst.

Æfingin í dag var ofur og var tekið hrikalega á því í deddinu og í beygjunum, Boris ætlaði bara að láta mig taka létt dedd þarsem að ég var búin að beygja frekar þungt en þarsem að andinn í minni var svo hrikalegur og það er víst ekki hægt að kaupa efra bak á e-bay svo að stelpan verður bara að hafa fyrir þessu á gamla mátan var´bara skelt sér í mörg sett af vel þungum réttstöðum alveg MEGA! Ég fýla það! tók dedd af pallu og búkka og venjulegt dedd og gekk það ofur vel :) skít létt og bætingar og allan pakkan!
Er að deyja úr vaxtarverkjum núna aðalega í brjóstinu frá því í skábekknum á mánudaginn og er það bara að gefa vel :) bíð spennt eftir æfingu á fimtudaginn, þá á ég líka afmæli :) og munu allar afmælisóskir vera vel þegnar þegar þar að kemur ;) 

en þangað til næst

xox. thelma power

01. apríl 2008 klukkan 22:38
Thelma Ólafsdóttir
3 athugasemdir
29mars

YO YO HOES!!

íslandsmethafi í  unglingaflokki kvenna í -67.5kg flokki í hnébeygju, bekkpressu, réttstöðulyftu og samanlögðu.

eigum við að ræða þetta einhvað??


nei held bara ekki! :)

á fullt inni! gengur bara betur næst. klárlega góð reynsla að prufa að keppa og ekki slæmur árangur fyrir fyrsta mót ;) stefni svo bara á bikarmótið í nóvember og læt íslandsmótið eiga sig í bili, vil mun frekar æfa vel frammá haust og þá verða sko teknar bætingar sem hægt verður að blogga um.


þá er það bara aftur í powerherbergið á mánudaginn þarsem að verður alveg hrikalega tekið á því ! Gefur vel án efa að fara að æfa með Boris, Stebba og Orra :) súper spennt alveg !


en núna held ég að ég fari bara að lúlla, alveg illa búin á því híhí


xox. thelma power ;)


p.s.

Takk allar snúllurnar mínar sem komuð að horfa  á mig keppa :) alveg æðislegt að hafa svona hel öflugar og sætar klappsýrur!!!!! lov jú all :************

29. mars 2008 klukkan 22:13
Thelma Ólafsdóttir
4 athugasemdir
29mars

I've got da POWA!

Thelma Power er að keppa í power í dag!! Djöfull verður hún HRIKALEG!!!!!!!


Nánari fréttir munu berast eftir mót.





ROAR!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
29. mars 2008 klukkan 08:40
Thelma Ólafsdóttir
1 athugasemd

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Thelma Ólafsdóttir
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: TOUS og Vinna í ţví ađ verđa Hrikaleg! ;)
  • Hjúskaparstađa: Enginn

Auglýsing

á dagskrá

Könnun

Let me hear you roar

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Innskráningar kubbur