24október

Stćrđfrćđi hor og stafsetning!

 

Skólin

 

Skólin er skrítin Svo “boring” að læra

En kennarar segj’okkur að pæla og pæla,

Ég pæli og pæli en núna ég æli

Því ég get ekki skilið þessi algebrudæmi :(

 

T.Ó. einhverntíman í 9 bekk.

  

Fyrsta umræðu efnið í dag Skólinn!

 

Afhverju þurfum við að læra stærðfræði? Það er ekki einsog að það séu ekki til vasareiknar sem eru ekki nógu öflugir til þess að reikna öll þessi dæmi!

            Sjálf hef ég aldrei verið neitt stærðfræði brein og er það kanski ástæðan fyrir því afhverju ég hata hana (hata samt frönsku meira).

Allt frá því að ég var í 1. bekk Æ í Kársnesskóla í Kópavogi hefur mér verið illa við stærðfræði, ég meina hversu margir í fyrsta bekk hafa skrópað til þess eins að sleppa við tíma? Það kom ekki sjaldan fyrir að ég vaknaði of seint, mamma smurði nesti, ég rölti af stað í skólan og labbaði eins hægt og ég gat (fanst það ekki beint skipta máli þar sem ég var þegar orðin of sein) og loksins þegar ég var komin uppí skóla settist ég á rafmagnskassan hliðiná skólalóðinni og beið þar, stundum kom það fyrir að mamma eða pabbi keyrðu framhjá á leið í vinnu og sáu mig og þá var ég skömmuð, fattaði reyndar ekki afhverju þar sem ég var nú bara að missa af einhverjum leiðinlegum lestrartíma í Littlu Gulu Hænuni!

Þar sem ég var ekki mjög fljót að læra og frekar löt sem barn, vildi miklu frekar horfa á barnatíman í sjónvarpinu eða stela jarðaberjum, brugga sjampó úr handsápu og selja nágrönnunum eða e-ð því um líkt, var ég ekki sú fyrsta að læra á klukku.

Í öðrum bekk kunni ég t.d. ekki á klukku! Ég var líka bara 7 ára, og þar sem ég var eftirhádegi í skólanum þurfti ég að leggja sájlf af stað. Einn daginn fór ég til Ingu vinkonuminnar og ætluðum við að vera samferða í skólan. Þegar stóri vísirin var komin á 12 og litli á 2 fanst okkur hún örugglega vera orðin of mart til þess að mæta í skólan og fórum þess í stað að horfa á Lukku Láka og klæða kisuna hennar í dúkkuföt og gefa henni Sinnep (kisa strauk af óútskíranlegri ástæðu af heiman). Þegar amma hennar (sem Inga bjó hjá ) kom heim lékum við okkur mjög saklausar og þóttumst vera nýkomnar heim.

Dagin eftir mætti mín svo hin hressasta í skólan. Hvar varst þú? Spurði Grétar kennari, ég sem var þekt fyrir að vera góður ligari var ekki fljót að henda því uppúr mér að ég hafði verið í uppskurð á fæti, og hélt ég þar með að ég væri sloppin, en NEI þurfti pabbi endilega að klúðra þessu með því að koma og sækja mig í skólan og þá spurði Grétar hann; hvernig hefur Thelma það í fætinum? Og pabbi bara HA? Og ég var skömmuð að vanda :(

Svona hefur skólaganga mín verið í hnotskurn. Ég man ekki eftir því að hafa lært heima NOKKURNTÍMA eða jafnve mætt í skólan nema kanski þegar ég var komin í 4 eða 5 bekk þá var ég dugleg að mæta oghef ég ekki skrópað síðan þar til nýlega eftir að ganga mín í FG hófst en kenni ég einstaklega leiðinlegum skóla um þessi skróp ekki hægt að kenna neinu öðru um þessa dagana enda kann ég núna á klukku :)

Hinsvegar kann ég ekki stafsetningu og eru eftirfarandi ekki óalgengar villur hjá mér:

 

1.         Mér fynst

2.         Kjæra ______

3.         Þrikkja

4.         Hustn (Houstoon)

5.         ifir

 

og svona mætti lengi telja (prófaðu að telja villurnar hjá mér í þessum texta og settu villu fjöldan í skoðanir).

            Ég virðist ekki geta munað reglur í stafsetningu né stærðfræði :( EN nú mér til mikillar gleði er ég búin að fara í greiningu þarsem kom í ljós að ég er með smá talnablindu og vott af dislexíu....datt engum í hug að athuga þetta fyrr? kanski áður en ég væri á síðasta ári í menntaskóla?

 

Dæmi um stærðfræðikunnáttumína:

 

Kennarinn: Thelma hvað eru 7 x 5 ?

 

Ég: 4 x 5 = 20 5 x 5 = 25 6 x 5 = 30 og þá eru 7 x 5 = 35 ?! er þaggi annars??

 

Svona góð er ég t.d í margföldun en þess má geta að ég er mjög góð í 5 sinnum töfluni :) svona miða við hinar allavega.

 

En svona er ég bara :/ Misheppnuð á allan hátt :) en ég verð víst bara að sætta mig við það og leika mig út sem gáfnaljós sem massaði greindarvísitölupróf um daginn en telst víst til meðal manneskju í stærðfræði og lestri og þarsem ég er tveimur staðalfrávikum yfir meðali í öllu öðru er þetta víst einhvað að hrjá mig.

 

  

Pæling dagsins Nr.2

 

Hor

 

Hvað er málið með foreldra ?

Afhverju má ég ekki bora í nefið? Það er ekki einsog ég sé að draga út einhverja græna horslummu og sleikjahana af puttanum á mér!! Mig klæjar bara stundum í nefið og þá vil ég klóra mér.....Einsog nágrannakonan um dagin fékk svo skemtilega að kinnast :)

Það vildi svo skemmtilega til að  mamma kom að sækja mig í skólan. Á leiðini inn innkeyrsluna heima lenti ég í því að klæja svona hrikalega í nefið. Mamma leggur bílnum og við stígum út og mamma segir: OJ Thelma viltu hætta að bora svona í nefið! Ég svara góðfúslega á móti enda yndisleg dóttir: Hvað er þetta með þig? Ég hef OFT séð þig bora í nefið!!! Öskraði ég um leið og nágrannin gekk framhjá og horfði svona “fallega á okkur” ég skil ekki svipin á henni þar sem ég er alveg viss um að hún bori stundum í nefið, ég meina hver gerir það ekki stundum???

 

Jæja en þetta var bara pæling :)

 

Pæling dagsins:

 

Meira, meira hor meira hor meira fjörefni.......



Bið að heylsa í bili! 
     

Má bjóða þér franskar með því??.......(hvað er málið með fólkið sem vinnur á McDonalds...Góðandaginn og verið hjartanlega velkomin á McDonalds, get ég aðstoðað þig? .....spes.....

24. október 2006 klukkan 16:45
Thelma Ólafsdóttir
2 athugasemdir
05október

Stađfestingin komin

já kæru lesendur það er þá staðfest ég er í topp 2% þjóðarinnar sem telst vera afburðagreindir. það þýðir að ég er með hærri greindarvísitölu en 98%þjóðarinnar gaman að komast að þessu á lögmætan og staðfestan hátt hjá Tauga Sálfræðingi :) kostar reyndar 35.þús krónur en samt :)
það er þó einnig staðfest að ég er með sértæka stærðfræði og les örðuleika...ekki nógu gott það en ég fæ því undanþágu frá stærðfræði í menntaskóla ...frekarsátt með minn snúð og fékk einnig vottorð uppá blindrabókasafn og mun nú hella mer í hljóðsnældur fyrir próflesturinn ;)
vildi bara deila þessu með ykkur

later
thelma
05. október 2006 klukkan 00:46
Thelma Ólafsdóttir
2 athugasemdir
27september

TEKINN!!

já nýjasta sjónvarpsefni okkar íslendinga nefnist TEKINN og er Auddi Blö þar í aðahlutverki að hrella fræga fólið á íslandi. Bæiddu ha? hvað sagðiru? já ég sagði nýtt sjónvarpsefni tekinn með audda blö hrella frægt fólk bla bla... og hvað með það? Nei kanski ekki nema kanski að þetta hljómar rosalega kunnulega....humm gæti það hugsanlega verið afþvi að Asthon nokkur Kutcher var með þátt sem hét PUNKED sem gekk útá já hvað....alveg nákvæmlega það saman og þessi nýji sjónvarpsþáttur á víst að gera.... Já mig hlakkar mikið til að sjá TEKINN þegar Bubbi verður Crazy afþví að bíllinn hans var dreginn eða þegar Halla úr Footloose verðandi X factor kynnir er tekin fyrir búðahnup.. mér mun finanst þetta álíka spennandi og þegar ég horfði á PUNKED þegar Carmen Electra og Dave Navaro voru "kidnaped" af crazy einkabílstjóra eða þegar brotist var inní húsið hans Chris Kline.  Já ég er rosalega spennt (finn kanski smá lykt af kaldhæðni þarna) þarsem að ég er komin með uppí kok af þessari íslensku COPY PASTE menningu sem er að riðjast inní landið okkar þá sérstaklega þegar kemur að sjónvarpsefni og ætla ég þá helst ekki að fara að hella mér í umræðu um Ástarfleygið (hvað var það?) Bachelorinn (sjitt það var bara of sorglegt) og margt fleira...Ekkert á móti Audda Blö en hvað mig varðar sé ég ekki frammá að nenna að horfa á þennan nýja þátt, horfi þá frekar á re-run af PUNKED ef ég kemst einhverstaðar yfir slíkt þarsem sá ´þáttur var heldur ekki upp á marga fiska. Það væri nú samt skemmtilegt að sjá kanski einvherntíman frumlegt skemmtilegt íslenskt sjónvarpsefni til tilbreytingar..

en þetta er nú bara smá pæling

kv.T 
27. september 2006 klukkan 22:35
Thelma Ólafsdóttir
1 athugasemd
13september

bla bla bla

Jæja kanski komin tími á smá blogg? Eða kanski ekki...?

Lítið í fréttum þessa dagana bara same ole same. Annars er maður bara að vinna í því að massa skólan og þjálfa 3 tíma á dag uppí sundlaug, reyna að ná af sér þessum 10 kílóum sem fyrir einhverja tiviljun byrtust á mér í sumar, minka brjósta ummálið og vinna einhvað í TOUS með þessu öllu. Það er búið að vera geggjað gott veður úti og sökum þess skellti ég mér í sund í gær eftir að hafa þjálfað enda var ég hvorteð er orðin skít blaut og ísköld og að komast í heitapottin hljómaði bara askoti vel! Ákvað að synda smá og for ole time sakes taka einn 50m Skrið sprett á þetta til að tjékka á forminu...hefði betur sleppt því því mig langaði að drekkja sjálfri mér eftir að ég sá tíman sem var heilar 40 sekúndur, sem er bara frekar mikið MIKIÐ slæmt miða við að ég var að synda fyrsta 25m í 50m á 12 sek hérna í gamladaga og heildina á rúmum 29sek var ekki sátt með minn snúð og er þettan kveikjan að nýja átakinu mínu sem hóft í dag með hrökkbrauðsáti og vatnsglasi...bíð spent með að sjá hvað ég fæ mér að borða á morgun en í millitíðini verð ég að kasta mér á æfingu og hella mér í lærdómin

Pæling dagsins:
Ef þegar við erum jörðuð þá segir presturinn Af jörðu ertu komin og að jörðu skaltu aftur verða, er það ekki svoldil þversögn á þróun mansins samkvæmt kirkjuni ég meina hey okay ef við trúum á þróunarkenninguna þá er þetta með að hafa verið mold og verða mold allt gott og blessað....en Adam og Eva voru aldrei mold....Adam var skapaður í guðs mynd og Eva úr rifbeininu á honum...... Ég bara næ þessu ekki


en jæja krakkar takk fyrir í dag

má bjóða þér franskar með því?

Kv.T

13. september 2006 klukkan 20:43
Thelma Ólafsdóttir
2 athugasemdir
31ágúst

Til hamingju međ Afmćliđ

Það er skrítið að hugsa til þess að í dag hefðiru orðið tvítug. Það er skrítið að hugsa til þess að fyrir nokkrum árum vorum við dauðskelkaðar við það að fermast og þegar við byrjuðum í menta skóla vá okkur fanst við svo stórar. Það sem er ó skrítnast kanski af öllu er að geta ekki fagnað afmælinu þínu með þér.
Þann 25 ágúst voru 2 ár síðan mamma kom inní herbergið mitt  og sagði mér að þú værir dáinn, ég man enþá hvernig hjartað á mér stoppaði og það eina sem ég gat hugsað um var að þetta gæti ekki verið satt, ekki þú, ekki Sif besta vinkona mín, hvernig gat það verið? Allar minningarnar mínar sem tengjast þér og allur einkahúmorinn sem við áttum og enginn skilur.  Þegar ég lenti fyrir bíl í 7 bekk og sagði öllum á slysó að þú hefðir bjargað lífi mínu sem ég held reyndar enþá fram, það gerir það kanski enþá sárara að hafa ekkert getað gert til að bjarga þínu. Ég mun aldrei gleyma því þegar ég sá þig liggjandi á dúnsæng í kapelluni ég labbaði inn og sá þig og það fyrsta sem mér datt í hug var að setjast niður og láta sem þú værir ekki þarna eða að ýminda mér að þú værir sofandi að lokum vissi ég að ég þyrfti að kveðja ég gat víst ekki setið inní þessu herbergi að eylífu, svo ég labbaði yfir að þér þarsem þú lást svo saklaus og falleg, ég starði á þig og minntist allra þeirra skipta sem við höfðum gist saman og þú oftast sofnað á undan þá helst slefað með opin munnin, en í þetta skiptið var það öðruvísi ég vissi að ég gat ekki bara potað harkalega í þig og svo sagt hey ertu sofandi? því í þetta skipti mynduru ekki vakna, ég kyssti ennið þitt, þú varst svo köld, ég vildi ekki sleppa þér.
Það er svo margt sem mig langar að spurja þig að og segja þér, ég get ekki annað en hlakkað til þangað til við hittumst á ný og rokkum við fóstbræðradiskin sem var í svo miklu uppáhaldi :)
Það voru sönn forréttindi að vera vinkona þín í öll þessi ár, við sjáumst svo hressar með luftgitar á himnum (ef ég kemst þangað) en þangað til þá TIL HAMINGJU MEÐ 20 ÁRA AFMÆLIÐ, SKEMMTU ÞÉR MEÐ JESÚS DJÚS Á HIMNUM ;)
þú snírð mér hring, hring, hring, eftir hring einsog geisladiskur hring, hring, hring, hring...... :) Lov jú að eilífu

Þín vinkona Thelma :*







31. ágúst 2006 klukkan 04:45
Thelma Ólafsdóttir
Engin athugasemd
24ágúst

Dominican Republic

Lenti í skemmtilegum samræðum áðan við hana G-DOG áðan, en hún dvelur sem stendur í D'ómeníska Lýðveldinu og fanst mér samtalið svo entertaining að ég ákvað að henda því á netið, sorry G-DOG here it goes ;)

Á tali með G-DOG ( í hlutverki Hot Tramp, thelma bara sem thelma)



Hot Tramp! says:

annars kitkum vid ut i gaer en thad eru ny log sem segja ad allir barir verda a loka klukkan 12 a virkum dogum og 2 um helgar

Hot Tramp! says:

omurlegt

thelma says:

oj púkó

Hot Tramp! says:

en vid forum bara og duttum i thad a fridys og sidan a einhvern bar nidri zona colonial og sidan i gard (parkque) thar sem var fullt af ronum og eihver amerikani sem eg eld hafi verid ad reyna fa okkur til ad flytja eiturlyf ekki viss samt

thelma says:

hahahahha

Hot Tramp! says:

en thegar vid komum svo heim til barboru klukkan 1 thar sem vid aetludum ad gista tha bara svarar enginn

Hot Tramp! says:

thannig ad thad endadi med thv ad vid turftum ad gista a modeli sem er hernar stutt fra

Hot Tramp! says:

en thetta eru engin venjulega motel neibbs thetta er fyrir folk sem kemur ad rida

thelma says:

hahahahha

thelma says:

thelma says:

þið eruð ótrúlega heppnar

Hot Tramp! says:

vid fengum sleipi efni og smokka og handklaedi og gaurinnn sem var ad vinnna hringdi i okkur um nottina og vildu spjalla svo reyndi hann ad koma inn

thelma says:

heheheh

Hot Tramp! says:

svo hringdi hann klukkan sex um morguninn og bad okkur um ad skila fjarsteringunni af sjonvarpinu

Hot Tramp! says:

sem vid vorum bunara ad leigja btw

thelma says:

og bara hann hress á kantinum vildi fá hana klukkan 6am aftur

Hot Tramp! says:

vid getum ekki bedid eftir thi ad komast heim

thelma says:

i alvöru

thelma says:

er ekki búið að vera gamanÐ

Hot Tramp! says:

vid faum nidurgang af ollu meira segja Hard rock!\\

thelma says:

Hot Tramp! says:

jamm alveg fan focking tastik

thelma says:

já sjit

thelma says:

en veðrið er það búið að vera gott?

Hot Tramp! says:

juju og gaurinn sem sem eg hitti i cabarette

Hot Tramp! says:

hahaha

thelma says:

hahaha

thelma says:

varstu að ríða?

thelma says:

var hann dóminikani?

Hot Tramp! says:

thad var spanverji sem reyndi ad rida mer og thegar eg vildi thad ekki

Hot Tramp! says:

tha sagdi hann> en thu ert fra SKANDINAVIU

Hot Tramp! says:

hahahahah

thelma says:

hahahahahhahahahahahahahhahahahahah

Hot Tramp! says:

vid hofum svo aedislegt ord a okkur

thelma says:

OMFG

thelma says:

já gegjað !!




Og var margt fleira sagt sem ekki hæfir ungum lesendum þessarar síðu!

love me later

enginn skóli fyrir mig á morgun!!!! :)

kv.T

24. ágúst 2006 klukkan 00:12
Thelma Ólafsdóttir
2 athugasemdir
23ágúst

FIRST DAY OF SCHOOL!

Þá er fyrsti skóladagurinn byrjaður "sjibbí dú" ég er rosalega spennt..... Tókst að afreka það að mæta of seint í fyrsta tíma í morgun sem var Enska 603, kennarinn var samt líbó og var ekkert að spá mikið í því, stefnir reynt allt í snilldar ensku tíma í vetur sýnist mér þarsem þetta er svipuð enska og ég var í úti í USA þannig að mín er með þetta allt á hreynu, allavegana tókst mér að röfla um Poe í of langan tíma samnemendum mínum til mikils ama en kannaranum til mikillar gleði, ég sleikti hana svo aðeins upp með því að spurja hana hvort hún væri ekki í Garpa hópnum í sundinu hjá Breiðablik og svona (þarsem ég er að þjálfa hjá breiðablik og svona hehe). Núna er ég hinsvegar í smá eyðu sem er mikið af í stundatöfluni minni og þarf ég að reyna að redda því ASAP eða reyndar bara eftir klukkan 13:00 í dag. Þarf að fá inn fjarnám og svona skemmtileg heit! Næsti tími er svo LIM (lista og menningar saga ógó gaman sko) og svo Kjólasaumur býst ég við í THL eða skissa kjóla réttarasagt og svo Særðfræði með henni ástkæru söru minni híhíhí það verður tremma stemmari, og svo íslenska en við beilum nú bara á það og skellum okkur í kæruleysi í töflubreytingu og komumst að því hvort við þurfum að taka þriðja tungumál eða ekki....því mjög svekkjandi ef ég þarf þess því hver veit þá hvort ég nái að útskrifast :/

Annars er ég að spá í að horfa á Ferris Buler's Day Off í kvöld til að fagna því að skólin sé byrjaður og stragigera hvernig hægt verður að skrópa á þessari önn ;)

love me later

kv T

23. ágúst 2006 klukkan 14:53
Thelma Ólafsdóttir
1 athugasemd
22ágúst

sumariđ var tíminn

Þá er sumarið opinberlega búið, skólinn hefst á morgun með meðfylgjandi leiðindum, ritgerðaskriftum og last minute bókakaupum fyrir próf. Ætli það sé ekki æskilegt að mæta á morgun klukkan 9 uppí skóla og  ná í stundatöfluna sína...þó ég sjái það nú alveg í hyllingum að einhver taki sig til og kveiki í skólanum...bara svona svo hann loki í nokkra daga og ég fái smá sumar plús frí. En þetta eru bara draumórar.

Í dag fengu Marta og Sara sér göt í eyrun (þá er ég að tala um svona auka göt fyrir ofan hin götin sem fyrir voru) sjálf ætlaði ég að fá með gat í brjóskið sem er staðsett í miðju eyranu en það verður að bíða betri tíma þarsem ég verð víst að gera það á tattoo stofu, er mikið að spá í að gera það bara á morgun :)

Annars er lítið í fréttum þessa dagana. Ég las þó um daginn athyglisverða frétt þarsem kom fram að Madonna ætti á hættu að vera handtekin í Þýskalandi fyrir tónleika sína sem eru partur af Confessions on the dance flor túrnum hennar, en einsog sumir kanski vita er upphafsatriði tónleikana þannig að Madonna byrtist á stórum Diskó krossi með þyrnikórónu á höfði ekki osvipað og Jesús á að hafa gert´hérna í den. Átti víst að handtaka popp stjörnuna fyrir að vanvirða trúna (aka kristni) hún hafði sér til varnar að hún væri að vekja athygli á Alnæmi...humm ...já oki fínt það þarf oft að gera ýmislegt til að misbjóða mér og jú jú mér er svosem nokk sama þó að Madonna byrtist á þennan hátt og kanski líki sér við Jesú. Það sem hinsvegar vakti athygli mína er það að einsog margir vita er Madonna Kahabla trúar (eða hvernig sem það er svosem skrifað), jú jú Madonna má trúa því sem hún vill og kanski ekkert merkilegt við það hvaða trúar hún er nema fyrir þær sakir að Kahabla (eða einhvað) er trúbrigði innan Gyðingdóms, Já Madonna er Gyðingur og sem Gyðingur trúir hún ekki að Jesús sé frelsarinn (eða Messías) einsog við hin 80% á íslandi sem flokkum okkur sem Lútherstrúar eða Kristna. Madonna trúir því semsagt ekki að Jesú hafi verið til, dáið fyrir mankinið né verið kross festur...... Svo Afhverju hún ákvað að líkja eftir  Jesú sem samkvæmt trú hennar var ekki endilega til og allavegana ekki merkilegur ef hann var það til að vekja athygli á Alnæmi er ofar mínum skilningi.... I don't get it.... en hún um það! spes hjá henni....

allavegana smá röfl svona í fyrstu "almennilegu" færslunni sem ég kasta hérna inn þannig að látum þetta bara duga í bili ég lofa að þetta verði ekki svona ömurlegt blogg í framtíðini :P

Love me later

Kv. T
22. ágúst 2006 klukkan 00:37
Thelma Ólafsdóttir
1 athugasemd
14ágúst

Testing

1
2
3



jæja þetta er allt að gerast



kv.T
14. ágúst 2006 klukkan 20:32
Thelma Ólafsdóttir
2 athugasemdir

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Thelma Ólafsdóttir
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: TOUS og Vinna í ţví ađ verđa Hrikaleg! ;)
  • Hjúskaparstađa: Enginn

Auglýsing

á dagskrá

Könnun

Let me hear you roar

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Innskráningar kubbur